156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[20:25]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Já, ég hef miklar áhyggjur af bakslaginu og ég óttast að það sé töluvert í háskólasamfélaginu eins og menn kjósa að kalla sig þar. Það er svo sem ekkert alveg nýtt að innan háskólanna, og ég er ekki bara að tala um Ísland heldur almennt á Vesturlöndum, sérstaklega í félagsvísindadeildunum, hafi tiltekin vinstri stefna ráðið för. Frægt var árið 1968 þegar nokkrir háskólamenn hvöttu ungt fólk til þess að ráðast í mikil mótmæli og reyndu að útskýra fyrir þessu unga fólki hvers vegna það ætti að vera að mótmæla. Að hluta til var þetta tengt Víetnamstríðinu og öðru en að hluta til var þetta bara almennur mótþrói. En þetta voru engu að síður jaðarhópar á sínum tíma, sérstaklega franskir heimspekingar sem boðuðu stefnu sem var alltaf á jaðrinum. Nú óttast ég að slík stefna hafi ekki aðeins aukist að umfangi heldur sé við það að taka yfir í háskólum og jafnvel farin að sækja inn á raunvísindin. Við sjáum dæmi um að það hefur verið boðað að það megi ekki fullyrða um ákveðin dæmi og niðurstöður þeirra, jafnvel að tveir plús tveir séu fjórir. Ég er ekki einu sinni að ýkja. Menn hafa fært rök fyrir því að það væri hægt að halda því fram að tveir plús tveir væru fimm eða eitthvað annað. Þetta held ég að sé hættuleg þróun og ekki til þess fallin að auka velmegun í samfélögum okkar.