Menntasjóður námsmanna.
Virðulegur forseti. Ég biðst velvirðingar á að hafa farið rangt með ávörp hér áðan, maður er að læra. Í framhaldi af þessu sem hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir um þá þróun sem hefur átt sér stað í háskólasamfélaginu þá er það sem við sjáum í gegnum tíðina og í gegnum aldirnar að allt fer í hringi. Við getum haldið því fram að það hafi verið á tímum ákveðin hægri sveifla í háskólasamfélaginu og síðan fer pendúllinn svona fram og til baka. Telur hv. þingmaður að þetta sé eitthvað sem hægt er að ráða við eða stíga inn í með einhverjum hætti eða erum við ekki bara í einhvers konar andrúmslofti, stemningu samfélagsins á hverjum tíma og getum við í rauninni haft eitthvað um þetta að segja? Auðvitað er bagalegt þegar maður sér að það er ekki svigrúm í háskólanum sjálfum fyrir allar hugmyndir, af því að ef einhvers staðar á að vera suðupottur hugmynda, þekkingar og nýrra kenninga þá er það í háskólasamfélaginu. Háskólinn á að vera ögrandi. Telur hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson að það sé eitthvað hægt að gera eða er þetta bara hringrás tímans?