156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[20:31]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir sína góðu framsögu í sínu máli. Hann vék að mér fallegum orðum í framsögu sinni og spurði mig spurninga um hvernig nám eigi sér stað og hvort nám geti einhvern veginn aftengst. Í raun hegðar tauganetið í heilanum, sem myndast þegar nám á sér stað, sér líkt og vöðvi. Ef þú notar sömu tengingarnar mikið þá verður þú þjálfaðri í að nota þær. Ef einhver skrifar mjög mikið þá verður hann færari í því að skrifa næst. Sama á við um lyftingar; ef þú lyftir með ákveðnum vöðva því betri verður hann næst í því að lyfta. Hv. þingmaður spyr þá um einhverjar háskólagreinar sem gætu valdið því að menn myndu mögulega, eins hv. þm. Snorri Másson nefndi hér, koma ruglaðri út úr námi og væru í einhvers konar skaðmenntun, þá er það vissulega þannig að það er alveg hægt að innræta fólki alls konar hluti. Við sjáum það í trúarsöfnuðum og á öðrum stöðum þar sem fólki er innrætt eitthvað og það fer gegn skynsemi. Mönnum er innrætt að vaða áfram út á vígvöll, þeir komast í ákveðið hugarástand. Þá er bara búið að styrkja það tauganet í heilanum mjög mikið á skömmum tíma og til lengri tíma þá kannski mögulega til að yfirvinna skynsemi. Kannski er þetta parturinn af því sem menn hafa verið að tala um varðandi skaðmenntun, að ef einhver menntun er þess eðlis að hún trompar skynsemi og heilbrigði og skaðar fólk þá gæti hún mögulega verið skaðmenntun.