156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[20:34]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þingmaður lýsti þarna áhyggjum mínum ágætlega og á fræðilegan hátt. Ég óttast nefnilega að heilafrumutengingarnar, sem hv. þingmaður nefndi í ræðu sinni fyrr í dag, að það sé verið að tengja vitlaust í sumum greinum og einkum og sér í lagi að það er ekki verið að búa til tengingar gagnrýninnar hugsunar heldur festa tengingarnar, víra þær fastar í því að það sé bara ein leið og ein niðurstaða. Þess vegna velti ég fyrir mér hvort hv. þingmaður geti þá hugsanlega tekið undir það að ef við viljum að nám skili tilætluðum árangri — og raunar er kannski ósanngjarnt að spyrja hv. þingmann með þessum hætti því að hann gerði ágætlega grein fyrir þessu í ræðu sinni en ég ætla engu að síður að ítreka efnið af því að hv. þingmaður orðar þetta svo fræðilega og skýrt: Getur ekki verið að þegar við erum að ræða hér hvatakerfi til náms, að þeir hvatar sem í því felast eigi að beinast að því að nám sé til þess fallið að auka á opna gagnrýna hugsun og þá, ef maður gagnályktar, ekki að vera til þess fallið að festa þessar taugatengingar á einn hátt sem fólk kemst jafnvel ekkert út úr það sem eftir er ævinnar?