156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[20:36]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir gott andsvar. Það skiptir gríðarlega miklu máli að það sé tekist á um málin, að þetta sé eins og hv. þm. Jens Garðar Helgason nefndi, að háskólasamfélagið sé suðupottur hugmynda, að það fái allar hugmyndir, góðar og slæmar, að koma fram og svo takast menn á um þær. Gagnrýnin hugsun verður almennilega gagnrýnin ef maður getur séð málið út frá fleiri en einum þætti. Við getum skoðað málin 360°, sett okkur í spor hins aðilans, efast um sjálf okkur, hvort við séum alltaf að gera rétt eða hugsa rétt þannig að ein bein trú eða skoðun er sjaldnast líkleg til gagnrýninnar hugsunar, hvað þá einhvers konar innræting. Það kann ekki góðri lukku að stýra. Gagnrýnin hugsun er nauðsynleg. Þess vegna skiptir viðamikil og djúp þekking á sem allra flestum þáttum samfélagsins miklu máli, ekki bara einum afmörkuðum því að þá eru allar líkur á því að maður festist inni í einhverjum bergmálshellum og sé þar allan daginn, fái enga ögrun, líði áfram og geti síðan ekki tekist á við áskoranir samfélagsins því að það eru ekki allir inni í þínum bergmálshelli. Þess vegna skiptir djúp, víðtæk grunnþekking gríðarlega miklu máli fyrir gagnrýna hugsun.