156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[20:38]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég get eiginlega ekki annað en tekið undir andsvar hv. þingmanns en vil nota tækifærið til að undirstrika það sem hann kom aðeins inn á í lok máls síns, þ.e. hvaða verðmæti felast í því fyrir einstaklinginn að taka þátt í gagnrýninni umræðu. Mér til að mynda þykir fátt skemmtilegra en að rökræða við einhvern sem færir góð rök fyrir máli sínu jafnvel þótt viðkomandi sé ósammála mér af því að það hefur ýmist þá þau áhrif að ég þarf sjálfur að finna betri rök fyrir mínu máli eða, og það hefur gerst, frú forseti, skipta um skoðun. Það er allt í lagi. Það getur verið smástingur til að byrja með en ef skoðanaskiptin byggjast á því að einhver með betri þekkingu á sviðinu eða betri rök nær að sannfæra mann þá líður manni betur á eftir. Þegar maður er búinn að fara í gegnum þetta í huganum og nýju tengingarnar sem hv. þingmaður vísar til eru orðnar til þá líður manni betur af því að maður telur sig betur upplýstan og fróðari. Þess vegna, ekki hvað síst bara fyrir andlega heilsu fólks og þekkingu, kunnáttu, er svo mikilvægt að menntun byggist á gagnrýninni hugsun og gagnrýnum umræðum. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)