156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[20:40]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Það hefur verið ansi fróðlegt að fylgjast hér með og taka þátt í þessari umræðu. Hún hefur farið um víðan völl en samt tengist þetta alltaf því efni sem lagt var upp með. Ég ætla að leyfa mér, virðulegur forseti, að fjalla um frumvarpið sem um ræðir hér, halda því áfram. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir að hafa verið hér í dag og sýnt umræðunni áhuga og tekið þátt í henni. Það er vert að þakka fyrir það. Þó að umræðan hafi eitthvað dregist á langinn og farið svolítið um víðan völl þá er það hluti af rökræðunni sem fylgir því að vera hér í þessum sal, að skiptast á skoðunum. Þó svo að farið sé svolítið út fyrir efnið þá er það …(Forseti (ÞSv): Get ég fengið hljóð í hliðarsal?) Þakka þér fyrir, forseti, að sussa á hæstv. ráðherra sem ég var rétt í þessu að hæla fyrir það eitt að taka þátt í umræðunni. [Hlátur í þingsal.] Þetta sló mig nú alveg út af laginu.

Mikilvægi þess að þessi umræða sé tekin — við getum alltaf bara leitt hugann að því þegar við eigum þessi skoðanaskipti hvert hún dregur okkur. Þegar hv. þm. Snorri Másson fór í dag að tala um skaðmenntun, það er eitthvert nýyrði sem ég hef nú ekki heyrt áður, þá færðist umræðan svolítið yfir á þann þátt. Aftur á móti erum við að ræða um mikilvæga breytingu á Menntasjóði námsmanna og ég trúi því og treysti að hæstv. ráðherra fari ansi vel nestaður frá þessari umræðu sem verði til þess að þetta mál taki væntanlega einhverjum breytingum. Vissulega er hæstv. ráðherra að sleppa hendinni af þessu en málið gengur núna til allsherjar- og menntamálanefndar í áframhaldandi vinnu og til umsagnar og verður væntanlega betra.

Það sem mér finnst vera rauði þráðurinn í gegnum umræðuna hér í dag er að við höfum svo mikið verið að tala um þessar ívilnanir varðandi félagslega hlutann sem snýr að því hvað samfélagið er að gera til að styrkja fólk til náms. Þetta snýr fyrst og fremst að því. Ívilnanir geta verið á margan hátt og byggðasjónarmið hafa sömuleiðis verið hér til umræðu. Ég verð að segja að það vaknaði töluvert mikil von að sjá hvert við gætum verið að fara með það stuðningsnet sem við sem þjóð bjóðum stúdentum upp á til að takast á við þau verkefni sem þau langar til að fara í. Ef við búum til brautina fyrir þau með ákveðnum þáttum sem snúa að ívilnunum, jafnvel þessum hvötum sem hefur verið talað um, afsláttum fyrir að standa sig vel í námi, þá er tilganginum náð.

Síðan er það allt annar þáttur sem snýr að umgjörð og uppsetningu á sjóðnum, sem mér finnst vera svolítið önnur umræða. Tilgangur þess að við erum hér með Menntasjóð námsmanna er að gera einstaklinga sem vilja nema eitthvað betri og skapa og styðja við einstaklinga sem vilja taka þátt í samfélaginu. Til þess er þetta. Við erum að fjárfesta í framtíðinni með því að halda þétt utan um og styðja við þetta góða frumvarp sem hæstv. menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra er kominn hér með í dag. Því ber að fagna. Að sjálfsögðu munum við Framsóknarmenn standa á bak við það og styðja þetta frumvarp eins vel og við getum.