Menntasjóður námsmanna.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir gott innlegg í umræðuna og góða seinni ræðu í þessu mikilvæga máli. Ég er alveg sammála því að auðvitað er vert að við höldum okkur við efnið eins og frekast er unnt. Þegar við, ég og samflokksmenn mínir, reikum út á aðrar slóðir er það ekki gert til að drepa málinu á dreif. Það er bara gert vegna þess að við teljum að umræðan um menntamál geti ekkert endilega farið fram án þess að horfa á hlutina í víðara samhengi. Þannig að ég vildi að því marki gera hreint fyrir mínum dyrum; okkur er síst í huga að vera að draga málið eða eitthvað slíkt. Hins vegar hef ég áhuga á að fá að vita það frá hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni, af því að að hluta til eru þessar grunnbreytingar á Menntasjóði námsmanna nokkur ár aftur í tímann að mörgu leyti komnar frá hans flokki, hvort hann telji almennt að menn séu á réttri braut með þetta. Eru það smáar lagfæringar hægt og rólega eða telur hann að meiri háttar kerfisbreytingar þurfi að koma til í framhaldinu, sem margir hafa nú verið að halda fram og að kerfið sé að mörgu leyti ekki alveg að þjóna okkar hagsmunum þó að það sé bara prýðilegt? Ég hefði bara áhuga á að vita hver hans innsýn er inn í þennan málaflokk.