Menntasjóður námsmanna.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir góðar spurningar. Ég vil taka það fram hér í upphafi að það var alls ekki illa meint hvað það varðar að menn væru að drepa málinu á dreif. Mér finnst mjög mikilvægt hvernig Miðflokkurinn hefur nálgast þetta varðandi það að þroska umræðuna sem við höfum átt hér í dag, svo að það sé nú sagt. Varðandi þær kerfisbreytingar sem standa til þá er það nú þannig hverju sinni, og það kemur fram í þessu frumvarpi, að hagaðilar, stúdentar í þessu tilfelli, hafa gefið jákvæða umsögn um það hvert er verið að fara. Þegar málið var unnið hér 2020 þá var það unnið í mjög þéttu samráði við stúdenta sömuleiðis. Síðan er það nú alltaf þannig að það gerist eitthvað á leiðinni. Sú kerfisbreyting sem lagt var af stað með 2020 er barn síns tíma í dag og þarf þar af leiðandi að lagfæra. Fyrrverandi hæstv. ráðherra þessa málaflokks á síðasta kjörtímabili, hv. þm. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, tók svolítið í það að fara aðeins að laga þetta til og núna er hæstv. ráðherra Logi Már Einarsson sömuleiðis að laga þetta. Þurfum við kerfisbreytingu? Þurfum við að snúa þessu öllu á hvolf? Ég veit það ekki alveg og get ekki svarað því. Ég held að tíminn og svona mál og bara þróun heimsins — þetta þurfi allt að haldast í hendur. Við sjáum það ekki fyrir í einum grænum núna. Miðað við umræðuna í dag þá held ég að það sé engin ein rétt leið fram undan í því hvernig við nálgumst þessa hluti. Þess vegna er þroskuð umræða eins og Miðflokkurinn leggur til hér í dag mjög mikilvæg.