156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[20:51]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Stutta svarið er já. Það er nú þannig að það er landbúnaðarháskóli á Hvanneyri og búfræðinám og allt sem því fylgir. Það er ekkert öðruvísi í þessari atvinnugrein en hverri annarri. Það er náttúrlega, eins og kom fram í ræðu hv. þm. Jóns Péturs Zimsens, þekking á öllum sviðum; það skiptir ekki máli í hvaða atvinnugrein það er, það er bara misjöfn þekking og misjöfn svið sem menn fara inn á. Nákvæmlega það sama á við í landbúnaði, sjávarútvegsfræðum eða þá að skapa gervigreind, sem ég í sjálfu sér skil ekki enn þá. Aftur á móti er þessi þáttur gríðarlega mikilvægur og það hefur bara verið haldið ágætlega utan um hann á því sviði.