Menntasjóður námsmanna.
Virðulegur forseti. Mig langaði að þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni sérstaklega fyrir andsvar sem hann kom með áðan. Við áttum í orðaskiptum og mig langaði aðeins að halda áfram með það umræðuefni. Þar kom hv. þingmaður inn á mjög góðan punkt. Hann talaði um að kerfið eins og það var í gamla daga hafi verið þess eðlis að námslán báru svo lága vexti að fólk sem þurfti kannski ekki námslán var að taka námslán og fjárfesta peningana í einhverju öðru. Þá veltir maður fyrir sér: Það var sennilega ekki hugsunin með kerfinu. Ég held að ég og hv. þingmaður séum sammála því að jafnrétti til náms sé gríðarlega mikilvægt. Því velti ég upp: Getur verið að í þessu kerfi — er þetta félagslegt úrræði eða er þetta hvatakerfi til að útskrifa nemendur? Mér verður bara hugsað um það í hvaða átt við séum að fara með þessu frumvarpi.