156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[20:53]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur kærlega fyrir spurninguna. Ég met það svo að það sem við erum að fjalla hér um í dag sé í sjálfu sér það að halda utan um félagslega þáttinn til að styðja þá sem þurfa virkilega á því að halda og síðan séu það hvatarnir í framhaldinu. Eins og mátti lesa úr þessu, að einhverjir séu að nýta sér einhverjar glufur í kerfinu og að taka lán án þess að þurfa á því að halda — ég þekki ekki þau dæmi í dag en áður fyrr var slíkt ágætlega þekkt. En eins og staðan er í dag þá met ég það svo að þessi ágæti sjóður, Menntasjóður námsmanna, eigi að styðja við á félagslegum grunni og vissulega eru þarna hvatar til þess að nemendur hraði námi sínu. Síðan er það bara allt önnur umræða hvort við eigum að drepa því á dreif o.s.frv., það er bara allt annar hlutur.