156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[21:01]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni að ég tel alveg öruggt að allir sem starfa í þessu eru að gera sitt besta og vilja vel og kerfið í heild sinni vill vel. Umræðan snýst ekki um það. Umræðan og spurningin snýst um það hvort þingmaðurinn útiloki að þetta geti átt sér stað. Þá vil ég sérstaklega einbeita mér að hugtakinu innræting, þótt mér þyki þessi nýju orð skemmtileg líka; skaðmenntun og gremjufræði. Ég vil einbeita mér að innrætingunni og nefna hitt dæmið. Það var fyrrverandi þingmaður sem ég fékk í heimsókn til Húsavíkur með afar svipaðar upplýsingar um það sem fram færi í þessari ákveðnu verksmiðju. Ég fór á rúntinn með fyrrverandi þingmann til að fræða hann. Það virtist koma fyrrverandi þingmanni jafn mikið á óvart og unga manninum sem ég fór með í fyrri ferðinni hvað hún hafði raunverulega verið fóðruð með röngum upplýsingum.