156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[21:03]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka enn og aftur fyrir ágæta spurningu og upplýsingar í umræðunni. Ég met það svo að þetta snúist alltaf um það hvernig við sem einstaklingar meðtökum þær upplýsingar sem við fáum hverju sinni og hvernig við nýtum okkur þær síðan í framhaldinu. Þetta snýst yfirleitt alltaf um það. Við þekkjum það öll hér inni að við höfum meðtekið einhverjar upplýsingar og talið þær ákveðinn sannleik en rekumst síðan stundum á vegg og áttum okkur á því að hlutirnir eru ekki eins og við héldum. Þá kemur það fyrir okkur öll eins og hv. þm. Sigmund Davíð Gunnlaugsson að menn geta bara skipt um skoðun þegar þeir hafa upplýst um og komist að hinu sanna. Ég hef því lítinn áhuga á því að leggja mér þessi orð í munn, hvort sem þau varða innrætingu eða eitthvað annað. Ég get ekki ímyndað mér að það sé tilgangur menntakerfisins að fara þá leið.