Menntasjóður námsmanna.
Frú forseti. Þetta hafa verið afskaplega gagnlegar og fjölbreyttar umræður sem hér hafa farið fram. Ég held að mikilvægum praktískum punktum hafi verið komið til leiðar með margvíslegum hætti. Maður gæti svo sem sett á miklar tölur um það að brýna fyrir hæstv. háskólamálaráðherra t.d. að hafa í huga í öllum þessum breytingum að í háskólakerfinu eins og öllu öðru — bara vegna þess að við vorum að tala um þessi þrjú eða fimm ár sem við leyfum okkur að dvelja í rólegheitum í háskólakerfinu — er það engu að síður ekki endilega til marks um að menntunin verði verri ef menn reyna að fara eins hratt og þeir geta í gegnum kerfið. Það er bara í raun og veru spurning um að vera skipulagður og vinna vel og vinna hratt. Það er ekkert að fara að verða verri menntun. En ég lýsti svona vægum áhyggjum af þessum hvötum sem við sköpum með því að færa styrkinn úr námslokum yfir í hverja önn.
Í víðari skilningi þá náttúrlega er bara mikill fengur einfaldlega að þeirri umræðu um menntamál sem við höfum fengið fram í þinginu í dag. Ég held að háskólar sem stofnun í samfélögum heims séu komnir í allt aðra stöðu en þeir voru þegar við vorum með t.d. Háskóla Íslands sem var komið á fót og þessi fagra bygging í Vesturbænum var reist í upphafi 20. aldar. Að sjálfsögðu var þetta þá miðstöð þekkingar af því að það var þarna sem hin fýsíska þekking, hin líkamlega þekking í bókum, var geymd, þ.e. hennar yrði ekki aflað utan háskólanna. Núna eru forsendur allar allt öðruvísi og þess vegna hafa háskólar í vestrænum samfélögum, líklega í ljósi þeirra breytinga að maður getur flett þessu upp á netinu — jafnvel þó að háskólinn segi enn þá að þær upplýsingar séu alltaf verri en þær upplýsingar sem hann færir fram þá höfum við engu að síður aðgang að þessum gögnum sem voru áður lokuð inni á stofnununum.
Hliðvörsluhlutverk háskólanna gagnvart þekkingu heimsins er því gjörbreytt og að sjálfsögðu er vert að reyna að setja sig í þessi spor. Ef við t.d. nefnum bara Galileo þá var það hann sem fer gegn kennisetningum kirkjunnar á 16. öld, fer fram með algjörlega öndverða kenningu sem er — nú er maður náttúrlega enginn vísindamaður en ég held að í grunninn sé það þannig að jörðin sé að snúast í kringum sólina, þó að hún hverfist líka um eigin ás, að hún snúist í kringum sólina. Þetta var kirkjunni ekki að skapi. Þetta var ekki hin opinbera kennisetning kirkjunnar. Og hann var ofsóttur fyrir þetta, gjörsamlega ofsóttur, en hann hélt sínu striki. Þó að Kópernikus hafi held ég upphaflega verið með þetta staðfestir Galileo þetta með vísindalegum rökum. Galileo, þannig að maður leyfi sér einnig að vitna í hann í þessu samhengi, segir að í vísindunum muni kennivald þúsunda aldrei skáka hinni auðmjúku og einföldu rökvísi einstaklingsins, þ.e. mín persónulega lífssýn er sú að við eigum sem einstaklingar að leyfa okkur — og ég vil hvetja fólk úti í samfélaginu sem er með kveikt á þingrásinni að leyfa sér að gera fyrirvara við það sem kemur frá þessum stóru stofnunum, vegna þess að háskólinn hefur ekkert ósvipaða stöðu í okkar samfélagi og kirkjan. Ég man að þegar ég vann í fjölmiðlum þá var mikill tilhneiging að þótt eitthvað lægi fyrir og allir sæju eitthvað þá var eiginlega ekki hægt að fara fram með það fyrr en menn fengu einhvern háskólamann til að staðfesta þetta í fréttunum. Fréttamenn stunduðu það reyndar líka að finna háskólamenn sem höfðu Samfylkingarlegar skoðanir.
Engu að síður er mikið kennivald bundið í háskólum í ákveðnum hluta samfélagsins á meðan annar hluti samfélagsins er ekki með sömu viðhorf til þessa kennivalds. Það er í mörgum málum sem ég held að þegar fram líða stundir þá munum við vafalaust horfa til baka og hugsa: Þarna tóku allir mark á háskólum en samt var eitthvað annað komið fram — hvort sem það er í þessu sem við höfum verið að ræða hérna, í skaðmenntunarfræðunum öllum, hvort sem það er í sektarkenndarfræðunum, eftirlendufræðunum eins og það var kallað þegar ég var í háskólanum. Eftirlendufræði fjalla um þessa djúpu sekt sem við Vesturlönd eigum að bera frá nýlendutímanum. Sjálfsagt að ræða það en í þessum fræðum, sem líkjast oft trúarbrögðum, líta menn á þetta eins og erfðasynd. Talandi um skaðmenntun, ég meina, það eru margvísleg dæmi um skaðmenntun.
Í grunninn þá finnst mér bara mikilvægt líka að við höldum því til haga í þessari umræðu að háskólinn er ekki upphaf og endir þekkingar. Það er bara gjörsamlega breytt. Ég held að við hefðum gott af því sem samfélag að færast frá þessari ofuráherslu og (Forseti hringir.) þessari blindu trú á sannleikann úr háskólunum og kannski hverfa aftur til alþýðufræðanna þegar fólk gerði þetta upp á eigin spýtur. (Forseti hringir.) Það var alveg tekið ákveðið mark á þeim. En nú er ræðutíminn búinn. (Forseti (ÞSv): Ræðutíminn er búinn.) Maður hefði nú viljað halda áfram með þetta.