156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[21:10]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu. Fimm tímar af tómri skemmtun sem sannar að vegir guðs og þingheims eru órannsakanlegir. Við vorum reyndar ekki allan tímann að ræða frumvarpið en menntamál á breiðum grunni og fyrir það skulum við þakka. Ég vona að málið fái góða umfjöllun í allsherjar- og menntamálanefnd og hlakka til umræðunnar í 2. umræðu.