156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[21:10]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Í ljósi þess að það sparaðist smátími hérna áðan ákvað ég að freistast til að fara í andsvar við hæstv. ráðherra. Ég vona að hæstv. ráðherra taki því ekki illa þar sem ég geri ráð fyrir að þetta hafi verið lokaræða hans í fyrstu umferð og ég vona að hæstv. forseti taki því ekki illa heldur. Ég nefnilega gleymdi einu atriði í seinni ræðu minni hér áðan. Það varðar þessa hvata sem við erum alltaf að tala um og þetta frumvarp á að fela í sér á ýmsan en takmarkaðan hátt. Telur hæstv. ráðherra að það geti komið til greina að innbyggja í framtíðarkerfi ákveðna álagshvata, því að sumt nám getur verið bæði dýrt og erfitt og er ástæða til að koma á einhvern hátt til móts við það?

Ástæðan fyrir því að ég spyr um þetta er að ég tala aðeins út frá eigin reynslu. Þegar ég hóf háskólanám þá byrjaði ég í byggingarverkfræði og langaði að verða byggingaverkfræðingur en námið fór fram í svo óaðlaðandi húsnæði að ég entist ekki nema viku í því námi vegna álags af umhverfinu og fór í annað í staðinn. Ég er ekkert viss um að annað námslánakerfi hefði breytt þeirri niðurstöðu en þetta varð til þess að ég fór að velta því fyrir mér að það eru náttúrlega ýmsar ástæður fyrir því að eitt nám getur verið erfiðara eða valdið meira álagi en annað og augljóslega verið dýrara en annað nám. Við höfum nefnt flugnámið hér í dag. Það getur vel verið, frú forseti, að ég láti bara eitt andsvar nægja ef viðunandi svar berst. Telur hæstv. ráðherra koma til greina að einn þeirra þátta sem tekið verði tillit til í áframhaldandi vinnu þessa máls verði kostnaður og álag vegna náms?