156. löggjafarþing — 24. fundur, 2. apr. 2025.
Menntasjóður námsmanna.
254. mál
Virðulegur forseti. Í fyrsta lagi held ég að álag sé ekki endilega til komið vegna erfiðleika hvers og eins fags heldur fer það dálítið eftir því hvernig viðkomandi nemandi ástundar námið. Varðandi álag sem skapast af einhverri fagurfræðilegri upplifun er erfitt að svara. Ekki getum við byggt einn skóla utan um hvern nemanda þannig að hv. þingmaður verður bara að temja sér meira umburðarlyndi gagnvart umhverfinu. [Hlátur í þingsal.]