Menntasjóður námsmanna.
Frú forseti. Ég veit ekki hvort ég tók það ekki nógu skýrt fram hér áðan að þetta var bara kveikjan að hugmyndinni en varðar ekki þetta sérstaka mál. Ég vil nota tækifærið og taka fram að ég tel að hæstv. ráðherra, sem er arkitekt, sé góður arkitekt og við höfum oft rætt það. Ég myndi halda að ef hæstv. ráðherra hannaði háskólabyggingu þá gæti ég, og eflaust margir fleiri, hugsað mér að stunda nám í þeirri byggingu. En það var ekki inntak spurningarinnar. Spurningin snýst um hvort þetta kunni að vera einn af liðunum sem litið verði til, kostnaður við nám, t.d. flugnám, sem er mjög dýrt, og nám sem er mjög álagsríkt. Ég ímynda mér t.d., án þess að ég viti það, að það sé töluvert álag að læra tannlækningar. Ég myndi ekki leggja í það en við þurfum tannlækna. Því spyr ég einfaldlega: Kemur til greina í áframhaldandi vinnu þessara mála að líta til kostnaðar og álags við námið þegar kemur að því að ríkið veiti hvata til ástundunar ákveðins náms?