Menntasjóður námsmanna.
Virðulegur forseti. Varðandi flugnám og annað slíkt nám sem er mikilvægt á landi eins og Íslandi þá höfum við verið að skoða hvort það séu einhverjar leiðir til þess að mæta slíku námi. Ég svara aftur varðandi álagið: Það er auðvitað svo einstaklingsbundið. Ég held að tannlæknanám geti verið álag fyrir einn nemanda en annan ekki og það getur meira að segja snúist um það hvort einn nemandi leggur sig af alúð fram og annar ekki, en báðir geta orðið fyrirtakstannlæknar. Þetta minnir mig eiginlega pínu á vin minn sem var ekkert of iðinn í skólanum en ágætlega gefinn. Kennarinn kom til hans og sagði: Gallinn við þig er að þú ert svo latur. Þá svaraði hann að bragði: Ja, það er betra að vera latur og nenna því en að vera duglegur og nenna því ekki. [Hlátur í þingsal.]