verndar- og orkunýtingaráætlun.
Virðulegur forseti. Það er gott að vera kominn aftur í að ræða þetta mál. Eins og gefur að skilja er það þannig að raforkumál eru eitt af stóru málunum í íslenskri pólitík í dag og ekki bara í íslensku samfélagi. Að mörgu leyti er hægt að fagna því að þetta frumvarp hafi litið dagsins ljós og sé að líta dagsins ljós en það er ákveðin leiðrétting og einföldun á regluverkinu í kringum raforkulögin.
Mig langar aðeins að lesa hér upp úr þremur umsögnum eins og þær koma fram í greinargerðinni, með leyfi forseta. Fyrst eru það Samtök iðnaðarins:
„Samtök iðnaðarins fagna vinnu um endurskoðun á lögum um rammaáætlun og telja hana jákvætt skref í átt að einföldun ferla. Þau leggja áherslu á að auka skilvirkni og einfalda regluverk enn frekar. […] Þau benda á að flókið regluverk hafi staðið í vegi fyrir grænni orkuöflun síðastliðinn áratug og að skortur á raforku hafi leitt til hærra raforkuverðs og skerðinga.“
Hér tala Samtök iðnaðarins um að það sé jákvætt að það sé verið að fara í þetta leiðréttingarferli. Hins vegar eru hér tvær umsagnir sem mig langar að ræða og lesa upp, með leyfi forseta:
„Í umsögn Storms Orku ehf. er lagt til að rammaáætlun verði lögð niður þar sem önnur lög, eins og lög um náttúruvernd, nái utan um friðun landsvæða. Bent er á að sá tími sem taki að fara í gegnum ferli rammaáætlunar sé óásættanlegur og valdi raforkuskorti og hækkun raforkuverðs. Raforkuöryggi sé í uppnámi vegna tafa í leyfisveitingaferli. Aðferðarfræði rammaáætlunar er gagnrýnd fyrir skort á samræmi og hlutlægni. Einnig er bent á að frekari friðun takmarki getu komandi kynslóða til framleiðslu grænnar orku sem geti stefnt loftslagsmarkmiðum Íslands í hættu. Því er einnig velt upp hvort réttlætanlegt sé að skerða stjórnarskrárvarinn rétt landeigenda með friðun einkalands.“
Viðskiptaráð segir hér, með leyfi forseta:
„Viðskiptaráð Íslands ítrekar fyrri afstöðu sína um að afnema eigi lög um verndar- og orkunýtingaráætlun þar sem þau byggist á norskri fyrirmynd sem hafi verið aflögð. ráðið telur að lögin séu óhagkvæm og leggur til að lagaumhverfi orkuvinnslu verði sambærilegt annarri atvinnustarfsemi í landinu og með áherslu á einföldun regluverks.“
Virðulegur forseti. Við höfum verið að ræða hér um frumvarpið og hvernig það er að einfalda rammann. En ég velti fyrir mér hvort ramminn sé orðinn eins og dauði hesturinn. Það er nefnilega til kenning sem heitir kenningin um dauða hestinn, eða á ensku, virðulegur forseti, „dead horse theory“. Hún er þannig að þegar hesturinn er dauður þá grípa menn til ýmissa ráða. Það er byrjað á að skipta um hnakk en ekkert gerist. Hesturinn er enn þá dauður. Það er skipt um fóður en ekkert gerist. Hesturinn er dauður og hreyfist ekki. Þá er skipt um knapa og það hefur að sjálfsögðu ekkert upp á sig af því að hesturinn hreyfist ekkert. Hann er dauður. Ef þessi hestur væri rekinn af hinu opinbera þá myndi ég gera ráð fyrir því að það yrði stofnaður starfshópur til að undirbúa aðgerðaáætlun með hvötum til að hesturinn fari aftur á lappirnar. En það mun ekki gerast af því að hesturinn er dauður. Þessi kenning, kenningin um dauða hestinn, er mjög þekkt í stjórnun fyrirtækja. Hún varð til í rauninni og hefur verið víða notuð um t.d. stór opinber mál og í einkageiranum þar sem er áfram haldið að vinna með einhvers konar kerfi, verkefni eða hvað sem það er þegar í rauninni er útséð með og staðan er þannig að það verður að stoppa og skoða hlutina upp á nýtt.
Þess vegna er athyglisvert að sjá, ef þú ætlar að byggja virkjun í dag, hvaða svipugöng þú þarft að fara í gegnum til þess að fá að byrja að byggja virkjun. Það var nefnilega mjög athyglisverður fyrirlestur sem Jóna Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri samfélags og umhverfis hjá Landsvirkjun, hélt á ársfundi Landsvirkjunar á dögunum. Þar var hún með glæru sem sýndi í rauninni það ferli og það regluverk sem við erum búin að búa til í uppbyggingu raforkuinnviða á Íslandi. Hverjir þurfa að gefa leyfi fyrir virkjunum? Jú, það þarf rannsóknarleyfi að undangenginni rammaáætluninni. Síðan er það mat á umhverfisáhrifum. Það er aðalskipulag, það er deiliskipulag, það er leyfi Minjastofnunar, það er leyfi Fiskistofu. Það er heimild Samgöngustofu, það er heimild Umhverfis- og orkustofnunar. Það er leyfi forsætisráðuneytis og sveitarfélags, það er leyfi landeigenda, það er leyfi Vegagerðarinnar. Síðan er það nýtingarleyfi, virkjunarleyfi, framkvæmdaleyfi, byggingarleyfi og starfsleyfi vegna hollustuhátta og mengunarvarna. Og hverjir eru nú leyfisveitendurnir? Jú, það er Alþingi, það er Fiskistofa, forsætisráðuneytið, heilbrigðiseftirlitið, Minjastofnun, það eru landeigendur, það er Samgöngustofa, Skipulagsstofnun, sveitarfélög, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfis- og orkustofnun og að lokum Vegagerðin. Ef einhver skyldi nú ekki vera sáttur eftir þessi svipugöng þá eru ýmsar kæruleiðir í boði. Það er hægt að kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Það er hægt að kæra til ráðherra og svo er hægt að kæra til dómstóla. Og hverjir skyldu nú vera lögbundnir umsagnaraðilar þegar stungið er niður skóflu fyrir nýrri virkjun á Íslandi? Það eru að sjálfsögðu leyfisveitendurnir, allir sem upptaldir eru hér. Það eru faghópar rammaáætlunar, það er Ferðamálastofa, Fjarskiptastofa, Land og skógur, Landsnet, Hafrannsóknastofnun, Minjastofnun, Náttúrufræðistofnun, Náttúruverndarstofnun, verkefnisstjórn rammaáætlunar, Veðurstofan og að lokum Vegagerðin. Þetta eru lögbundnir umsagnaraðilar.
Ég velti því fyrir mér, virðulegur forseti, þegar við erum komin á þennan stað, við erum komin með regluverk þar sem allt þetta ferli á sér stað, þurfum við virkilega að bæta við öllum þeim árum sem eru inni í rammaáætlun? Ef virkjun er í nýtingu, ef virkjun er fýsileg eða einhver telur að það sé fýsilegt og arðsamt að fara í virkjun og þarf að fara í gegnum allt þetta hér sem ég var að nefna á undan, þarf það virkilega að vera mörg ár í umræðu í rammaáætlun líka? Er það í rauninni eitthvað sem við, þingmenn, þingheimur, verðum að velta fyrir okkur? Erum við komin á þann stað að rammaáætlun er dauði hesturinn? Ég er farinn að hallast að því þegar við erum að horfa upp á orkuskort. Við erum núna aðeins að ræða um það hvernig við ætlum að reyna að einfalda regluverkið í þessari rammaáætlun og öðru sem við erum með. Erum við þá ekki bara að reyna að skipta um hnakk á dauðum hesti? Við tölum um það að við ætlum að búa til sérlög þar sem við verndum heimilin og smærri fyrirtæki í landinu. Ég veit svo sem ekki alveg hver skilgreiningin er á smærri fyrirtækjum af því ég held að í rauninni nánast öll fyrirtæki á Íslandi séu smærri fyrirtæki ef horft er til nágranna okkar í Evrópu. Þá velti ég fyrir mér þegar við erum farin að tala um að vernda ákveðna hópa inni í skortinum, sem er mannanna verk, erum við þá ekki líka farin að velta fyrir okkur hvort við eigum að kaupa nýtt fóður fyrir dauðan hest? Verðum við ekki, kæri þingheimur, virðulegur forseti, að fara að horfast í augu við það að við þurfum kannski að fara að horfa í aðrar áttir? Við þurfum annan hest sem stendur á fjórum fótum og er tilbúinn til að ganga áfram. Við verðum að fara að horfa til þess að búa til nýtt kerfi sem stuðlar að því að þingið og lögin séu skýr. Ef virkjunarferli fer af stað þá má það taka að hámarki þrjú ár í ferli og virkjun tekur um fimm ár í byggingu. Við skulum bara setja okkur það metnaðarfulla markmið, við sem sitjum hér og erum að ræða raforkuskort. En ætlum við þá ekki að ræða raforkuskortinn og hvernig við ætlum að leysa hann en ekki að reyna að koma einhverjum ákveðnum hópum í skjól án þess að leysa skortinn? Skorturinn verður ekki leystur nema við tökum alvöru stórar ákvarðanir, við þingheimur, við þingmenn, í löggjöf og regluverki í kringum raforkuiðnað á Íslandi í dag.