verndar- og orkunýtingaráætlun.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta yfirferð og auðvitað er vert að spyrja sig hver staðan er með tilliti til rammaáætlunar og ástands hennar. Mig langaði, úr því að hér er verið að ræða — og maður kemst ekki hjá því að reifa tíðindi sem hafa orðið í tengslum við tolla gagnvart Íslendingum í innflutningi á vöru, 10%. Það eru viðsjár í alþjóðamálum og við verðum að treysta stoðir íslensks efnahagskerfis, m.a. auðvitað með því að virkja þar sem það á við. Það er þessi orkunýting sem við erum að tala um. En það er önnur orkunýting sem hefur einnig verið til umfjöllunar í fjölmiðlum og ég leyfi mér sömuleiðis að reifa þessa möguleika sem hafa verið ræddir þar, t.d. í Viðskiptablaðinu sér maður, um olíuleit á Drekasvæðinu. Þar hefur tölum verið fleygt fram á borð við 33.000 milljarða íslenskra króna sem gætu hlotist af því. Ég hefði áhuga á að vita hvað hv. þingmanni fyndist um slík áform, úr því við erum að ræða orkunýtingu og regluverk, af því að auðvitað tökum við það í ákveðnu heildarsamhengi, hvað hv. þingmanni og varaformanni Sjálfstæðisflokksins fyndist um slík áform, hvort hann sé þeim í eðli sínu mótdrægur eða hvort hann hafi almennt jákvæða afstöðu til þess.