156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

268. mál
[21:29]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Snorra Mássyni kærlega fyrir þessa spurningu. Ég tek undir að það eru viðsjárverðir tímar og það eru akkúrat viðsjárverðir tímar sem kalla á það að þjóðir eins og við þurfum orkuöryggi, við þurfum raforkuöryggi og við þurfum að tryggja það t.d. að við erum háð olíu og við verðum að flytja inn olíu. Ég get nú bara upplýst um það að þegar ég var formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar á sínum tíma þá leiddum við vinnu í samvinnu við, þá hét það Fljótsdalshérað, Múlaþing í dag, þessi tvö sveitarfélög fóru í rauninni í markaðssetningu á að gera Austurland að olíuhöfn Íslands. Það var markaðssetning sem tókst mjög vel og núna er komin aftur ályktun frá bæjarráði Fjarðabyggðar um að það eigi að hefja olíuleit aftur eða í það minnsta gefa út leyfi, óski þess einhver að fara í olíuleit, og ég bara tek heils hugar undir það, eins og formaður Sjálfstæðisflokksins hefur líka lýst yfir í Viðskiptablaðinu, við tökum heils hugar undir það að ef einhver vill fara og leita að olíu þá eigum við ekki að standa í vegi fyrir því.