verndar- og orkunýtingaráætlun.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir greinargóð svör. Ég held að það sé alls ekki vitlaust að íslensk stjórnvöld skoði þetta af alvöru núna. Það er að einhverju leyti breytt landslag í hugarfari gagnvart þessu. Ef við Íslendingar höfum leiðir til að tryggja okkar hagsmuni með svona afgerandi hætti, auðvitað efnahagslega, að hverfa af þeirri braut að sjá fyrir okkur að við berum slíka ábyrgð á ástandi heims að við eigum að fela öðrum ríkjum heims að leita að olíu sem við gætum hæglega gert, þá tel ég, sérstaklega vegna þess að við erum að tala um þessa viðsjárverðu tíma, að við þurfum að skapa okkur sérstöðu og við þurfum atvinnugreinar hérna á Íslandi sem auka framleiðni. Það er líka framleiðniþátturinn í hagkerfinu sem skiptir svo miklu máli, ekki hreinn hagvöxtur heldur framleiðni, og allt slíkt sem er hrein orka sem er að koma — og olía er hreinni orka en margir aðrir orkugjafar, þannig að það sé sagt. (Forseti hringir.) Maður spyr hv. þingmann hvort þetta sé ekki umræða sem við þurfum að taka.