156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

268. mál
[21:32]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég tek heils hugar undir með hv. þm. Snorra Mássyni að það er þannig að framleiðni starfa er forsendan fyrir hagvexti og áframhaldandi velferð og lífskjörum Íslendinga. Það er ekki nóg að búa til störf, við verðum að búa til störf sem skapa framleiðni. Það er verðmætasköpun, verðmætasköpun, verðmætasköpun, á því lifum við. Það er bara þannig.

Talandi um olíuna þá held ég að olíunotkun Íslendinga sé sirkabát 13 TWst. Það eru 13.000 GWst. Akkúrat í þeim efnum segi ég: Kæri þingheimur. Nú erum við með fyrir rammanum 1.700 GWst sem við ætlum að setja í vernd. Ég tel, miðað við hvað við þurfum bara í olíunni ef við ætlum að tala um orkuskiptin, að þá verðum við að setja þessa orkukosti a.m.k. í bið, ekki í vernd. Höldum þeim áfram a.m.k. í bið.