156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

268. mál
[21:33]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir ágæta ræðu. Ég staðnæmdist svolítið við dauða hestinn, þar sem alveg var ljóst, alla vega frá bóndans hendi, að hesturinn væri steindauður og þá kaupir maður bara nýjan. Ég skildi svo sem inntakið í því hvert hv. þingmaður var að fara með þessari myndlíkingu sinni hvað það varðar. Í gær ræddum við hér einföldun á leyfisveitingum og síðan erum við að fjalla núna um þennan ramma og ég ætla að taka upp hanskann fyrir hæstv. ráðherra hvað það varðar að ég tel að við séum á réttri leið, þannig að ef hv. þingmaður hefur átt þennan hest sem gaf upp öndina og svaraði engu, alveg sama hvað hann gerði, og nú þykist ég vita að þetta hross hefur verið frá Þingeyrum, [Hlátur í þingsal.] þá myndi ég mælast til þess að hv. þingmaður gerði eins og hæstv. ráðherra gerði hér í gær með mikilli og góðri framgöngu þegar hann kom hér með einföldun á leyfisveitingum og kom hingað með rammann fyrir okkur sem við ræddum síðan, að hv. þingmaður færi í Steinnes og keypti sér nýjan hest. Ég vona að hv. þingmaður skilji hvert ég er að fara, þ.e. að við þurfum að endurnýja og það er það sem verið er að gera og við sitjum ekki á sama hestinum sem er búinn að vera dauður í nokkur ár.