verndar- og orkunýtingaráætlun.
Virðulegur forseti. Það er ánægjulegt að hæstv. ráðherra sé kominn með talsmann hér í salinn, hv. þm. Þórarin Ingi Pétursson, en ég held að hann hafi aðeins misskilið hvert ég var að fara þótt ég reyndi nú að tala hans tungumál. Málið er að það sem ég var að kalla eftir er að við þingheimur hættum að reyna að plástra kerfi sem er úr sér gengið, er ekki að þjóna þjóðinni, er ekki að þjóna okkur efnahagslega eða út frá öryggissjónarmiðum. Við verðum að hafa kjark og þor, þingheimur, við öll, þvert á flokka, til að stíga stórhuga skref í þessum málum. Það er kallað eftir því af þjóðinni, af atvinnulífinu, af bara landsmönnum, sem kalla eftir því að við stígum stórhuga skref en séum ekki hér að tala okkur ofan í kerfið aftur og aftur og reynum að plástra það aftur og aftur, frekar að við segjum stopp nú og við förum aðra leið. En við þurfum að hafa kjark og þor og þetta þarf að vera þverpólitískt og akkúrat eins og þing er samansett núna hef ég þá trú að mögulega gæti verið tilefni til þess að láta reyna á það nú fyrir þessum þingheimi að fara þessa leið.