verndar- og orkunýtingaráætlun.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góð svör. Ef við höldum okkur við hestamennskuna þá er lausn á þessu. Ef við tökum þennan ramma sem er dauður í augum hv. þingmanns, þ.e. hesturinn, þá bjóðum við Þingeyingar náttúrlega upp á góðan reiðtúr um þingeyskar moldargötur á þingeyskættuðum hestum og keyrum síðan hratt um grund á tölti, þ.e. við getum alveg unnið, við erum með ramma og síðan er það þingið sem hefur lokaorðið. Það er þannig sem þetta er. Vissulega eru margir þættir núna sem voru settir í vernd en við treystum þinginu og það er þingið sem á lokaorðið í því hvert við höldum áfram varðandi það hvert virkjunarkostir fara, hvort þeir fara í nýtingu, vernd eða biðflokk.