156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

268. mál
[21:38]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég hélt á köflum að við værum farnir að ræða búvörusamninginn. Ég skil alveg úr hvaða átt hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson er að koma en það sem ég er að segja er að ég held að við verðum að horfast í augu við það að ef við ætlum að leysa þann vanda sem blasir við okkur í dag þá verðum við að hugsa öðruvísi. Við verðum að hugsa upp á nýtt og við þurfum að vera djörf í að taka ákvarðanir og stytta ferlið og ég held að við gerum það ekki innan rammans að stytta ferlið þannig að heildarferlið sé um þrjú ár. Það er alveg hægt að koma því inn, hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson, í þetta ferli að þingið hafi einhverja aðkomu að því. En hv. þingmaður heyrði alla upptalninguna og þau svipugöng sem framkvæmdaraðilar þurfa að fara í gegnum.