verndar- og orkunýtingaráætlun.
Virðulegur forseti. Ég biðst velvirðingar á þessu og ég ætla að fá að bera fyrir mig reynsluleysi, eins og þekkt er orðið í íslenskri pólitík í dag.
Plástur, segir hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson. Jú, af því að ég vil horfa á hlutina öðruvísi. Þetta mál og þetta frumvarp er alveg framfaramál, það er til hins betra, en ég segi: Við erum að plástra kerfi sem er að mínu mati ekki að þjóna þjóðinni. Það er það sem ég er að skora á þingheim á, að við hættum þessum plástrum þó svo að þeir stoppi blæðingar hér og þar og að við förum að hugsa stórt. Það er það sem ég er að skora á okkur öll hér, að við hugsum stórt og höfum kjark og þor til að ganga lengra heldur en plástrafrumvörpin sem verið er að leggja fram.