156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

268. mál
[21:46]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Það fer svo sem ekki fram hjá neinum að þegar kemur að þessum mikilvæga málaflokki, orkumálum, þá er þingmönnum mikið niðri fyrir og ég veit að stjórnarliðum er farið að leiðast þófið, vilja klára þetta sem fyrst. En það vill nú þannig til að allir eru bara í sinni fyrstu ræðu og það hlýtur að teljast mjög eðlileg umræða. Menn eru ekki farnir að tefja hana á meðan sú er staðan uppi. En ég hef saknað þess mjög að ráðherrann skuli ekki taka málið alvarlegar. Það var óskað eftir því af hálfu meiri hlutans í dag að það yrði lengdur þingfundur í kvöld til þess að menn gætu nýtt tímann vel og unnið og tjáð sig um málið. En það er eðlileg krafa hjá okkur í stjórnarandstöðunni og bara eðlileg vinnubrögð hjá hæstv. ráðherra að vera hér við þessa umræðu, 1. umræðu í sínu máli, og ég óska eftir því að kallað verði eftir viðveru ráðherrans við þessa umræðu.

(Forseti (EÁs): Ég hef tekið þessum tilmælum.)