verndar- og orkunýtingaráætlun.
Virðulegur forseti. Við erum að ræða hér frumvarp til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun sem er alveg gríðarlega stórt og mikið mál. Þess vegna kemur það mér svolítið á óvart að sjá ekki fleiri þingmenn í þessum sal að hlusta á þessa umræðu vegna þess að þetta er bara eitt af þessum stóru málum í okkar samfélagi sem ég held að við höfum öll, sama hvar í flokki við erum, miklar skoðanir á og sú staða sem upp er komin í raforkumálum á Íslandi er orðin grafalvarleg.
Af því að í ágætri ræðu sem var flutt á undan mér var verið að tala um línulagnir og erfiðleikana við að fá raforku tengda í gegnum í sveitarfélög landsins og einkalóðir og leigulóðir þá rifjaðist upp fyrir mér saga sem ég held að eigi ágætlega við núna og lýsir kannski svolítið ástandinu. 2010 tók ég við sem oddviti í Sveitarfélaginu Skagafirði. Áður en við vorum í kosningabaráttunni fórum við hring um Skagafjörð í rútu, bæði þáverandi sveitarstjórnarfulltrúar og við sem vorum að taka við. Þá var ungur drengur með mér sem var formaður umhverfis- og skipulagsnefndar sveitarfélagsins sem sagði við mig þegar við komum inn í Lýtingsstaðahrepp, benti þar upp í hlíðina og sagði: Heyrðu, svo er hér eitt smámál sem þú þarft að klára sem við erum aðeins byrjaðir á sem heitir Blöndulína 3 og hún á að koma hingað yfir. Ég sagði: Já, við hljótum að geta klárað okkur af því. 2022, þegar ég lauk setu minni í sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar vildi svo til að þessi ungi drengur tók við af mér sem oddviti Framsóknarflokksins í Skagafirði og við fórum sambærilegan rúnt. Þá benti ég honum upp í hlíðina í Lýtingsstaðahreppi og sagði: Við þurfum að klára þetta mál hérna, þetta er smámál, það þarf að koma Blöndulínu 3 hérna yfir. Á þessum 12 árum gekk okkur nánast ekki neitt, tók 12 ár að koma, eða í raun og veru koma ekki þessari línu í gegnum Skagafjörð, þó að það séu komnar hreyfingar á það núna. En það lýsir kannski þessari stöðu sem uppi er og við erum að kljást við.
Þessi áætlun sem við erum að ræða hér í dag gengur almennt undir nafninu rammaáætlun og er byggð á norskri fyrirmynd, norskri rammaáætlun, og felst í því að leggja mat á ýmiss konar hagsmuni varðandi landnýtingu eða náttúruvernd á svæðum sem unnt er að virkja til raforkuframleiðslu yfir ákveðinni stærð. Þessi áætlun var við lýði í Noregi frá 1982–2016 þegar Norðmenn aflögðu sína áætlun, voru búnir þá að meta þau svæði sem áttu að fara í vernd og þar af leiðandi sáu þeir ekki tilgang í því að hafa slíka áætlun í gildi lengur.
Við höfum hins vegar verið með þessa áætlun uppi frá því um aldamótin en 1. áfangi rammaáætlunar — eða verkefnisstjórnin skilaði sínum niðurstöðum, ef ég man rétt, 2003, og þar voru um 35 nýjar hugmyndir. 2. áfangi við sömu rammaáætlun fór af stað 2004 og stóð sú vinna til 2011 þegar verkefnisstjórnin skilaði skýrslu til innviðaráðherra og umhverfisráðherra með heildarmati á röðun virkjunarhugmynda sem höfðu verið í umfjöllun. Verkefnisstjórn 3. áfanga rammaáætlunar var skipuð 2013 og tók til starfa sama ár og skilaði sinni lokaskýrslu til ráðherra 2016. Það var þingsályktunartillaga sem byggðist á niðurstöðum og var fjórum sinnum lögð fram á Alþingi áður en hún var samþykkt með þingsályktun um vernd og orkunýtingu landsvæða, nr. 24/152, 15. júní 2022. Það liðu sem sagt sex ár eftir að niðurstöður lágu fyrir og níu ár eftir að verkefnisstjórnin hóf störf þar til þessu var náð fram. Var tillagan samþykkt óbreytt? Nei, hún var ekki samþykkt óbreytt þar sem þingið ákvað að færa virkjunarkosti úr nýtingarflokki og hins vegar úr verndarflokki yfir í biðflokk, en einn kostur var færður úr biðflokki í nýtingarflokk þegar þessi áætlun var afgreidd hér á þinginu. Verkefnisstjórn kennd við 4. áfanga taldi óljóst hvort hún gæti unnið mat á nýjum virkjunarkostum á meðan Alþingi hafði ekki afgreitt tillögur verkefnisstjórnar 3 og fór svo í lokin að hún lagði slíkt mat og skilaði af sér gögnum í mars 2021. Það var daginn áður en skipunartími nefndarinnar rann út. Við erum komin núna í 5. áfanga rammaáætlunar, sá hópur var skipaður 2021 og er nú enn að störfum. Síðasta vor, 2024, var tillögum skilað inn til ráðherra um endurmat á virkjunarkostum í 3. áfanga sem þingið ákvað að færa úr nýtingarflokki í verndarflokk yfir í biðflokk með þingsályktunartillögu sem var samþykkt í júlí 2022 eins og ég fór yfir áðan.
Sú innleiðing á rammaáætluninni sem átti sér stað hér á landi með lögunum 2011 var gerð á grundvelli framangreindrar fyrirmyndar frá Noregi, eins og ég fór hér yfir áðan, en hún er samt ólík að mörgu leyti. Í raun og veru var í upphafi ákveðið að íslenska verndar- og orkunýtingaráætlunin yrði bæði um áætlun um vernd og áætlun um nýtingu eins og nafnið gefur til kynna. Af hverju er ég að fara yfir þessa sögu? Ja, ég held að það sé mikilvægt þegar við erum hér í þessum sal að ræða þetta lagafrumvarp sem liggur hér fyrir að við áttum okkur aðeins á því og rifjum upp hvernig okkur hefur gengið í þessari vegferð og hvað hefur áunnist. Klárlega hefur eitthvað áunnist, ég er ekki að gera lítið úr því, virðulegur forseti, en höfum við náð þeim árangri sem stefnt var að þegar lagt var af stað í þetta verkefni 2003? Það er mér til efs.
Ég fagna þeirri tillögu, ég held að ég geti bara sagt þeim tilætlunum og hugmyndum núverandi hæstv. ráðherra um að reyna að flýta hér kerfinu og gera það skilvirkara vegna þess að það er alveg augljóst að það er eitthvað í þessu kerfi okkar sem er ekki að virka sem skyldi og ég held að það sé ekki einhver einn lapsus í því kerfi, ég held að það séu margir. Þetta hefur verið gagnrýnt og það kemur fram í greinargerðinni og við getum lesið það í umsögnum að gagnrýnin sem kannski heyrist mest er, eins og ég kom inn á, varðandi skilvirkni ferilsins, hve langur tími hafi liðið í sumum tilvikum þar til niðurstaða hefur fengist í málum er snúa að orkunýtingu á grundvelli áætlunarinnar. Það hefur verið bent á það ítrekað að virkjunarkostir innan rammaáætlunar hafi verið allt að níu ár í meðferð hjá opinberum aðilum áður en niðurstaða hefur fengist um það hvort viðkomandi kostur félli í verndar- eða nýtingarflokk.
Önnur gagnrýni sem hefur komið fram meðal hagaðila eða haghafa eru athugasemdir sem snúast að mestu leyti um skilvirknina frekar en að verkefnisstjórnin hafi komist að faglega rangri niðurstöðu varðandi einstaka virkjunarkosti. Þannig að hvað er ég að segja hér? Ég er að segja að það virðist vera þannig að þetta ágæta kerfi sem lagt var af stað með 2003 hafi kannski ekki algjörlega náð tilgangi sínum. Mig langar að nefna þetta hér vegna þess að ég hef mikið talað um þetta og ég hef rætt um þetta hér á Alþingi og bara mjög víða og mér finnst þetta einhvern veginn ekki ganga upp. Við erum með fjóra faghópa og faghópur 1 er að meta virkjunarkosti og landsvæði með tilliti til náttúru- og menningarminja, landslags og víðerna og eftir atvikum önnur þau verkefni sem verkefnisstjórnin felur hópnum. Hópur 2 er að meta virkjunarkosti og landsvæði með tilliti til annarrar nýtingar en orkuvinnslu, svo sem vegna ferðaþjónustu, útivistar og landbúnaðar og eftir atvikum önnur. Í verkefnahóp 3, faghóp 3, á að meta virkjunarkosti og landsvæði með tilliti til áhrifa þeirra á samfélagið, svo sem áhrifa á félagslega velferð íbúa, samfélagslega fjölbreytni, samskipti, samstöðu, virkni og eftir atvikum önnur verkefni sem verkefnisstjórnin felur hópnum. Í fjórða lagi, virðulegur forseti, er verkefni faghóps 4 að greina hagkvæmni virkjunarkosta og kostnaðarflokka og eftir atvikum önnur verkefni.
Virðulegur forseti. Vandamálið, og það er það sem ég hef verið að benda á og ætla að benda hér á aftur, er að faghópar 3 og 4 hafa í raun og veru ekki skilað niðurstöðum um matið, og er eingöngu metið út frá fyrstu tveimur flokkunum. Ég skil bara ekki hvernig það getur gengið upp að við séum að meta virkjunarkosti sem eiga að fara í gegnum matsferli hjá fjórum faghópum sem hver og einn á að meta ákveðna þætti verkefnisins þegar bara helmingurinn af þeim hefur skilað. Það er mjög óljóst að átta sig á því hvernig við getum fengið rétta niðurstöðu út úr þessu verkefni þegar samfélagslegir og hagrænir þættir hafa ekki verið metnir. Mér finnst þessir þættir skipta verulegu máli, virðulegur forseti. Mér finnst skipta miklu máli að við fáum að vita það um virkjanir, hvort sem þær eru á Norðurlandi eða Suðurlandi eða vestur á fjörðum, hvaða hagrænu áhrif þær hafa eða hvaða samfélagslegu áhrif þær hafa áður en við tökum ákvörðun um hvort það verður farið í þær eða ekki. Þetta skiptir máli. Þetta hefur ekki verið gert og þessu verður að breyta.
Þess vegna, virðulegur forseti, er ég hugsi miðað við sögu rammaáætlunar hér á Íslandi og þá stöðu sem við erum með í orkumálum þjóðarinnar í dag, hvort þetta hreinlega hafi tekist eða hvort við eigum að leita annarra leiða í að meta og forgangsraða, hvort við eigum að halda okkur við fordæmi Norðmanna og leggja áætlunina hreinlega til hliðar eða hvort við getum gert einhverjar breytingar á ferlinu, hvort við getum reynt að lappa upp á dauða hestinn, sem ég er ekkert endilega viss um. Ég er alveg sammála hv. þm. Jens Garðari Helgasyni þegar hann kom hérna áðan og fór að tala um að við þyrftum að vera stórhuga og stíga stór skref. Ég er algerlega á þeim skóm því það er algjörlega ljóst að ef við sem erum í þessum sal höfum ekki kjark og þor til þess að gera það þá verður það ekki gert. Svo einfalt er það. Ég get líka alveg viðurkennt það, og er óhræddur við að segja það, að nákvæmlega hvaða aðra leið við eigum að fara er ég ekki viss um, ég er ekki með töfralausnir, en við megum ekki festa okkur svo í því að við séum hér með kerfi sem sé meitlað í stein og við getum aldrei breytt því og megum ekki hrófla við því, hvað þá að henda því út ef við sjáum að það er ekki að virka og það hefur ekki virkað. Þá erum við komin í verri stöðu en við erum í í dag.
Virðulegur forseti. Ég ætla svo sem ekki að hafa þetta mikið lengra í alla vega þessari ræðu. Það getur vel verið að ég komi hér upp og bregðist við einhverju ef umræðurnar fara í þá átt að ég sjái þörf hjá mér á að koma hér upp og taka þátt frekar í umræðunni. En mér fannst nauðsynlegt að ég kæmi hér upp og kæmi þessum sjónarmiðum mínum hér á framfæri. Enn og aftur, þó að ég viti að fyrirætlanir hæstv. ráðherra um að lappa upp á kerfið séu góðar og þær eru klárlega viðleitni í rétta átt, þá er það mér til efs miðað við söguna og miðað við það sem ég fór hér yfir áðan, söguna í stuttu máli frá 2003, hvað við höfum áorkað, að við séum hreinlega á réttri vegferð í þessu máli.