verndar- og orkunýtingaráætlun.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir sína ræðu. Mér heyrðist á inntaki ræðunnar að við séum sammála um inntak þessa frumvarps, að við viljum bæta málsmeðferð og auka skilvirkni þegar kemur að raforkumálum og það er það sem fjallað er um hér. Mig langaði að spyrja hæstv. ráðherra, afsakið, hv. þingmann sem sat í síðustu ríkisstjórn hvort hann gæti ekki veitt okkur innsýn í það hvað það var sem vann gegn skilvirkni og því að við kæmum fleiri römmum í gegnum þingið og færum í frekari orkuöflunarframkvæmdir. Hann beindi svolítið athyglinni að faghópunum sem eru svona hægt og rólega að skila af sér og við erum að fá hérna inn frumvörp. En var einhvers konar pólitísk andstaða líka? Voru það þingmenn eða þingflokkar sem voru að vefjast fyrir eða var þetta allt bara ferlið sem var þungt?