verndar- og orkunýtingaráætlun.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið og sérstaklega að ávarpa mig sem ráðherra. Ég kunni vel að meta það. Hvað var það sem tafði? Meðal annars það sem er verið að reyna að lappa upp á hér; ferlið, skilvirknin, leyfisveitingarnar, flækjustigið. Það var ekki til þess að auðvelda og það hefur verið vitað í mjög mörg ár að við erum búin að koma okkur upp kerfi sem er, leyfist mér að segja, alveg andstyggilega flókið og tyrfið. Þess vegna, eins og ég kom að í ræðu minni, fagna ég þeirri viðleitni hæstv. ráðherra núna að koma fram með frumvörp sem eiga að einfalda kerfið. En inntakið í minni ræðu var kannski meira það að mér er til efs, þó að góður hugur fylgi, að þetta sé nægjanlegt. Ég er að komast meira og meira á þá skoðun að mögulega þurfum við bara að henda þessu kerfi og byrja upp á nýtt. En að sjálfsögðu, af því að hv. þingmaður spurði hvort það hefði verið einhver pólitískur ágreiningur í síðustu ríkisstjórn, þá held ég að hv. þingmaður eins og þjóðin öll hafi algerlega orðið þess — ja, hvað á ég að segja? Það þarf ekkert að hafa mörg orð um það að auðvitað var pólitískur ágreiningur í síðustu ríkisstjórn um það hvernig ætti að fara með raforkumálin eins og ýmisleg önnur mál. Það var ekki til þess að einfalda hlutina en svoleiðis var það. Ég hef nú grun um að ný ríkisstjórn eigi líka eftir að lenda í málum (Forseti hringir.) sem eru pólitískt erfið og ágreiningur um, en vonandi leysa þau það.