156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

268. mál
[22:06]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir svarið. Ég verð nú bara að segja að ég fór á nokkra framboðsfundi fyrir síðustu alþingiskosningar og þá voru oftar en ekki einmitt fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sem héldu því fram að það væru Vinstri græn sem hefðu verið að tefja raforkumálin í ríkisstjórn og hér í þingsal. En mín fyrstu kynni af umfjöllun um rammaáætlun er einfaldlega þau að það eru Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn sem berjast á hæl og hnakka gegn því að við náum að afgreiða rammaáætlun út úr þinginu. Fyrst var það sex klukkustunda umræða um plasttappa. Svo er það 5–6 klukkustunda umræða um Menntasjóð námsmanna sem alls ekki snerist um Menntasjóð námsmanna og hér erum við annað kvöldið í röð, langt fram á nótt, að fjalla um málið þrátt fyrir að í orði sé eins og allir séu sammála um málið. Hér koma þingmenn stjórnarandstöðunnar úr Framsóknarflokki, úr Sjálfstæðisflokki, sem hafa á tyllidögum haldið því fram að þeir vilji aukna skilvirkni og aukna raforkuöflun í landinu, og berjast á hæl og hnakka gegn því. (Forseti hringir.) Við erum með öflugan ráðherra sem kemur fram með skilvirknifrumvarp og hverjir berjast gegn því?

(Forseti (EÁs): Ég minni hv. þingmenn á að ræðutíminn er ein mínúta í síðari umferð.)