verndar- og orkunýtingaráætlun.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni kærlega fyrir síðara andsvarið. Hef ég verið í þessari umræðu að berjast gegn þessu frumvarpi? Ég er að tala í minni fyrstu ræðu í þessu máli, þessu mikilvæga máli. Sér þingmaðurinn eitthvað að því að ég sem kjörinn fulltrúi hér á þingi, eins og hann, geti staðið í þessu púlti og tjáð mig um þau mál sem eru í gangi í þinginu? Er það orðið óeðlilegt? Finnst hv. þingmanni það óeðlilegt að ég komi hér í púlt og ræði um þau mál sem ríkisstjórn hans leggur hér fyrir? Er það þannig? Er það málþóf að ég taki hér til máls einu sinni í þessari umræðu? Það get ég ekki séð. Ef það er þannig þá hefur hann einhverja aðra túlkun á málþófi heldur en ég.