156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

268. mál
[22:08]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Það er nú ekki hægt að láta hjá líða að gera athugasemdir við málflutning þingflokksformanns Samfylkingarinnar. Öðrum eins ruddaskap hefur maður ekki orðið vitni að hér þó að margur hafi verið brúkaður í þessum góða sal. Við þingmenn erum hér að ræða mál sem eru einhver mikilvægustu mál sem okkar samfélag stendur frammi fyrir í dag og menn eru hér enn í fyrstu ræðu og það er verið að væna menn um málþóf og talað um að hér sé verið að tala langt fram á nætur þegar klukkan er rúmlega tíu að kvöldi. Hv. þingmaður stóð fyrir því í dag að óska eftir lengri þingfundi fram eftir kvöldi til að það væri hægt að ræða málin betur. Við erum bara að fylgja því eftir sem okkar vilji er í þeim efnum. Ég vil benda hv. þingmanni, þingflokksformanni Samfylkingarinnar á það, virðulegur forseti, að hann ætti að fara í skóla til Össurar Skarphéðinssonar sem ég sat hér með á þingi í nokkuð mörg ár og við vorum góðir sessunautar og erum góðir félagar. Hann orðaði það einhvern veginn þannig að enginn hefði gengið í gegnum eldskírn hér á þingi fyrr en hann sæi sólina koma upp hér á morgnana.