156. löggjafarþing — 24. fundur, 2. apr. 2025.
verndar- og orkunýtingaráætlun.
268. mál
Frú forseti. Það var hreint með ólíkindum að hlusta á þetta. Hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson kemur hér og vænir menn um málþóf og mig undrar ekki þó að þingmaðurinn sem í hlut átti hafi örlítið notað röddina og skipt um tón því hann var búinn að segja örfá orð um þetta mál, hann var að stíga upp í fyrsta skipti og hér eru menn að fara á taugum strax. Það verður eitthvað ef við sýnum eitthvert málþóf.