156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

268. mál
[22:10]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Það er vont að þingmenn stjórnarandstöðunnar séu móðgaðir. Ég vil kannski draga það sérstaklega fram að það hefur enginn nota orðið málþóf hér í ræðustól nema þeir sjálfir. Ég veit ekki hvort þeir séu svona spenntir fyrir því að þeir eru strax farnir að rífa það spil fram. En það eru þeirra orð.