verndar- og orkunýtingaráætlun.
Virðulegur forseti. Þetta er ankannaleg umræða. Ég held að hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson hljóti að gera sér grein fyrir því þegar tvö af stærstu málum þjóðarinnar í dag, raforkumál og menntamál, koma hér til umræðu þá hlýtur það að vera eðlilegur framgangur lýðræðisins að hér komi upp þingmenn Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins og Framsóknarflokksins, sem hafa alltaf látið sig þessi mál mikið varða, og ræði þetta í ræðustól. Hér hafa verið mjög málefnalegar og góðar umræður. Ráðherrar, ef þeir hafa verið hér — þú bendir nú hér á tóman stólinn — hafa komið upp í andsvör og tekið þátt í umræðunum, þó nokkuð af stjórnarþingmönnum líka. Þetta er lýðræðið. Þetta eru eðlilegar og góðar umræður og þær hafa verið efnismiklar.