verndar- og orkunýtingaráætlun.
Virðulegur forseti. Það er áhugavert að fylgjast hérna með. Auðvitað er það áhugavert þegar mál eru mikið rædd og mikið farið í andsvör hjá stjórnarandstöðunni. Ég veit ekki hvort ég eigi endilega að taka undir það að það sé hægt að kalla þetta málþóf á þessu stigi en menn geta þó alla vega haldið því til haga hér í þessum sal að þingmenn stjórnarandstöðunnar og stjórnarandstöðuflokkarnir eru a.m.k. talsvert líkari Pírötum þessar vikurnar heldur en Sjálfstæðisflokknum, Miðflokknum og Framsóknarflokknum.