156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

268. mál
[22:15]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir góða spurningu. Ég var með þetta í ræðu minni skrifað þótt ég hafi ekki lesið það áðan, en hún er nú komin í rugl eftir að ég missti hana í gólfið áðan, ég er að reyna að finna þetta hérna. En ég held að það sé bara um hvort tveggja að ræða. Við vitum að sá tími sem vinnslan hefur tekið, í áætluninni, hefur verið allt of langur. Við vorum að tala um níu ár áðan. En það er hins vegar ekkert launungarmál og ég býst við að það sé það sem hv. þingmaður er að fiska eftir að tíminn sem farið hefur í þref hér á þingi um virkjunarkosti og um þetta plagg hefur oft á tíðum líka verið allt of langur. Það er þess vegna sem ég er að velta þessu fyrir mér og ég heyri það nú að það eru fleiri þingmenn að velta því fyrir sér hvort það sé til eitthvert betra kerfi. Ég sagði það í minni ræðu áðan að ég væri ekki með það en ég velti því fyrir mér hvort það geti verið, í þeirri stöðu sem uppi er. Við getum eytt restinni af kvöldinu í það að reyna að finna út úr því hverjum það er að kenna eða hver sökudólgurinn er, ég held við eigum ekki að gera það. Ég held að við þurfum að reyna að horfa áfram veginn og finna einhvern veginn bestun á þessu verkefni, hvort sem það er þá í gegnum rammaáætlun með þeim lagfæringum sem m.a. hæstv. ráðherra er að gera hér með sínum tillögum eða að reyna að finna einhverjar aðrar leiðir. En klárlega, í mínum huga, er þetta sambland af hvoru tveggja.