verndar- og orkunýtingaráætlun.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svörin. Mig langar kannski til að bæta einu atriði við. Þingmaðurinn fór ágætlega yfir áfangaskiptingu rammans og ræddi þar m.a. 1. og 2. áfanga og líka 3. áfanga ef ég tók rétt eftir. Á þeim tíma þegar verið er að byrja í rauninni með rammaáætlun var staðan sú að það voru kannski ekki margir kostir sem voru þekktir og rammaáætlun á m.a. að ganga út á það að bera saman virkjunarkosti og meðan verið er að safna upp í þann hóp virkjunarkosta sem þurfa að vera undir ef menn ætla að meta hagkvæmni milli kosta þá skiptir auðvitað máli að við náum að búa til eitthvert mengi til að fylgjast með því.
Varðandi framhaldið þá langar mig til að spyrja hvort það sé eitthvað í frumvarpi ráðherrans sem þingmaðurinn hefur sérstaka trú á að gæti orðið til þess að flýta rammanum umfram annað.