156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

268. mál
[22:19]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvarið. Hvað er það í þessu frumvarpi sem ég hef sérstakar mætur á? Skildi ég spurninguna rétt? Ég held að það sé ekkert eitthvað eitt sem ég get talið upp, við erum að tala hér um að skýra og einfalda þetta kerfi. Það eru nefndir ansi margir þættir sem er verið að fara yfir og ég ætla svo sem ekki að taka einhvern einn út. En eins og ég sagði í ræðu minni áðan þá hef ég trú á því að þetta frumvarp sé klárlega til bóta í heild sinni. (Forseti hringir.) Ég held að þetta sé skref í rétta átt. Ef það er vilji okkar að halda áfram með rammann þá verðum við að halda þessari plástrameðferð áfram.