verndar- og orkunýtingaráætlun.
Virðulegur forseti. Ég fagna því að kominn er ákveðinn tónn í hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson um að við þurfum jafnvel að hugsa stærra, hafa kjark og þor. Ramminn er ráðgefandi. Hann er tefjandi en við skulum hafa það fyrir utan, ramminn er ráðgefandi. Það sem ég velti fyrir mér, af því að nú er hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson úr Skagafirði: Telur hv. þingmaður í rauninni að í rammanum sé horft til þátta — ég hef ekki séð það — eins og eru í gangi í náttúrunni? Jafnvel geta jarðskjálftar í Bárðarbungu ógnað öllum okkar virkjunum í Þjórsá. Í rauninni setur það þá virkjunarkosti sem við eigum eftir í svolítið annað ljós, virkjanir eins og Hamarsvirkjun sem er á leiðinni inn í þingið. Þar er lagt til að hún fari í vernd, 60–70 MW virkjun á Austurlandi. Líka erum við að ræða Skatastaðavirkjun akkúrat núna í þinginu, hún er í meðförum þingsins, sem getur orðið allt að 400 MW virkjun. Báðar þessar virkjanir eru á köldum svæðum, utan í rauninni áhættu náttúruaflanna. Mig langar að spyrja hv. þingmann: Telur hann ekki að það þurfi að horfa orðið miklu sterkar til þjóðaröryggismála þegar við erum að meta virkjunarkosti fyrir virkjunarkosti sem eru á köldum og öruggari svæðum? Það er kannski ekkert öruggt á Íslandi en a.m.k. öruggari svæðum en mörg af þeim svæðum þar sem við erum með virkjanir okkar í dag. Við erum svolítið að setja öll virkjunareggin okkar í sömu körfuna.