verndar- og orkunýtingaráætlun.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni kærlega fyrir stórgott andsvar og spurningu. Ég er alveg hjartanlega sammála hv. þingmanni um þetta. Ég held að því miður séum við ekki að dreifa orkukostunum nægilega vel og höfum ekki gert það. Ég hef verið talsmaður þess í mörg ár og mikill stuðningsmaður fyrir virkjun Skatastaða. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir að nefna þann virkjunarkost hér. Ég hef farið á marga fundi með bæði Landsneti og Landsvirkjun, sérstaklega Landsneti sem hefur lýst miklum áhuga á því að fá þá virkjun inn á kerfið, einfaldlega út af því að það myndi styrkja flutningskerfi Landsnets alveg gríðarlega að fá þarna öfluga tengingu og virkjun í Skagafirði. Fyrir utan, af því að spurt var um náttúruvá og hvar við ættum að setja niður orkukostina í ljósi þess hvar þeir væru öruggastir, þá er það nú bara þannig að í Skagafirði er helsta náttúruváin sú að Héraðsvötnin hlaupi. Einmitt með því að virkja Skatastaði myndi maður losna við þá náttúruvá. Þá er Skagafjörðurinn sennilega með öruggustu landsvæðum á Íslandi hvað varðar náttúruvá. Ef við eigum að raða niður virkjunarkostum út frá náttúruvá þá er þarna klárlega kostur sem mér finnst að við eigum að líta til. Burt séð frá því þá finnst mér galið að setja þann virkjunarkost í vernd eins og lagt er til.