verndar- og orkunýtingaráætlun.
Virðulegur forseti. Í framhaldi af þessu langar mig að spyrja hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson um það að við erum búin að heyra það núna og sjáum að Landsnet er komið af stað í framkvæmdir á Suðurnesjalínu þó að ekki sé búið að leiða í jörð öll þau kærumál sem eru í gangi, af því að það er ekki hægt að bíða. Staðan á Reykjanesi er þannig að fyrirtækið verður að halda áfram. Það verður að halda áfram þrátt fyrir að það sé ekki búið að fara yfir allt kæruferlið og klára öll mál sem þar eru.
Þá kemur að þessum þjóðhagslega mikilvægu framkvæmdum eins og Suðurnesjalína er, eins og Holtavörðuheiðarlína 1 og 3 eru fyrir þetta svæði, suðvesturhornið, til þess að tengjast við Norðurland og Blöndu. Alveg eins og með ákveðna virkjunarkosti, í ljósi þeirrar náttúruvár sem getur verið á Íslandi og í rauninni hvað það skiptir orðið raforkukerfið miklu máli að hringtengja Ísland, sérstaklega fyrir suðvesturhornið, af því að það skiptir máli, telur þú að við ættum að setja sérlög um þjóðhagslega mikilvægar framkvæmdir í orku- og innviðauppbyggingu til að flýta þeim?