verndar- og orkunýtingaráætlun.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni kærlega fyrir síðara andsvar. Eins og ég kom inn á í ræðu minni er það alveg ljóst að sú staða sem uppi er varðandi hringtengingu Landsnets á byggðalínunni er í molum. Hún hefur ekkert gengið og þetta er óboðlegt. Af því að hér var minnst á Skagafjörðinn þá upplýsi ég þingheim og ykkur sem ekki vita að ég er þaðan. Sú staða sem þar er að teiknast upp hvað varðar t.d. það að fá stærri verkefni í Skagafjörðinn er sú að það er nánast ómögulegt. Hver ræður því? Hver ræður stöðunni? Það eru Landsnet og Landsvirkjun sem eru einhvern veginn orðin ráðandi í því hvar er hægt að veita orkuna. Og hvar er mesta orkan? Hún er hér. Í hverju felst byggðastefnan? Er hún þar? Nei. Ég held því að við verðum að skoða þetta út frá svo miklu stærri hagsmunum en við erum að gera í dag.