156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

268. mál
[22:27]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Frú forseti. Það er sannarlega óhætt að segja að Ísland sé fremst meðal þjóða þegar kemur að nýtingu á endurnýjanlegum orkugjöfum. Mér hefur þótt vanta upp á í þessari umræðu að hér sé dregið fram af hverju það sé svo nauðsynlegt að auka orkuframleiðslu á Íslandi, framleiða meiri hreina endurnýjanlega orku. Endurnýjanlega orkan okkar er ekki aðeins umhverfisvæn heldur skapar hún gríðarlegan efnahagslegan ávinning og tækifæri. Því er með ólíkindum að við finnum okkur í þeirri stöðu að hér sé orkuskortur.

Þjóðir sem búa yfir náttúruauðlindum standa á margan hátt framar öðrum löndum sem ekki búa yfir slíkum auðlindum. Nýting endurnýjanlegu orkunnar okkar hefur skipt sköpum fyrir okkur sem þjóð en lykilatriðið í þeirri setningu er nýting. Það að forfeður okkar ákváðu að nýta orkuna með ábyrgum hætti var eitt mesta heillaspor þjóðarinnar. Framfarir eins og við höfum séð undanfarna áratugi hefðu ekki átt sér stað ef forfeður okkar hefðu ákveðið að nýta ekki auðlindir okkar. Hlutir gerast nefnilega ekki af sjálfu sér. Nú er það á ábyrgð okkar að tryggja næga orku til framtíðar til að hér megi áfram vera efnahagslegar framfarir, blómlegt atvinnulíf, að nýsköpun geti dafnað og lífslíkur aukist. Til viðbótar er orkuöryggi mikilvægt fyrir sjálfstæði þjóðarinnar svo ekki sé minnst á á tímum mögulega breyttrar heimsmyndar.

Þegar við ákváðum að nýta orkugjafa eins og vatnsafl og jarðvarma á fyrstu áratugum síðustu aldar var það m.a. gert með það að markmiði að við yrðum síður öðrum háð með því að þurfa að flytja inn orkugjafa sem eru mun óumhverfisvænni. Á Íslandi er orka líka ódýr. Hún er ódýr miðað við víðast hvar annars staðar í heiminum en hún hefur verið mun ódýrari. Við höfum séð hækkanir undanfarið vegna þeirrar ótrúlegu stöðu, eins og ég sagði áðan, sem við höfum sjálf komið okkur í, að hér ríkir orkuskortur. Endurnýjanleg orka er frekar ódýr í framleiðslu þegar litið er til langs tíma. Nýting á auðlindum okkar hefur líka orðið til þess að Ísland hefur til að mynda ekki þurft að borga fyrir innflutning á jarðefnaeldsneyti í nálægt því sama magni og við hefðum ella þurft að gera með tilheyrandi kostnaði. Þetta hefur haft jákvæð áhrif á verðlag og rekstrarkostnað á ýmsum sviðum atvinnulífsins. Með minni orkukostnaði hefur fyrirtækjum á Íslandi verið gert kleift að stunda samkeppnishæfan rekstur, til að mynda í stóriðju, og samhliða að gera gagn fyrir heimsbyggðina með því að t.d. ál sé framleitt á mun umhverfisvænni og hagkvæmari hátt en flest önnur lönd geta gert og það þrátt fyrir legu landsins og flutninga afurðarinnar heimshorna á milli.

Ég get ekki ítrekað nógu mikið hve nýting okkar á endurnýjanlegri orku hefur haft ótrúlega jákvæð áhrif á efnahag landsins. Hún hefur ekki aðeins tryggt orkusjálfstæði og dregið úr orkukostnaði heldur einnig stuðlað að nýsköpun, ekki bara undanfarið heldur síðustu áratugina. Hún hefur núna undanfarið stuðlað að vexti í ferðaþjónustu og aukinni atvinnusköpun og með áframhaldandi og enn meiri nýtingu auðlinda okkar getur Ísland styrkt efnahag sinn enn frekar og haldið áfram að vera fyrirmynd fyrir önnur lönd þegar kemur að nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa sem drifkraft fyrir hagvöxt og sjálfbærni.

Þetta eru atriði sem mér finnst að hafi ekki komið nægilega vel fram. Við virðumst frekar sammála um það að við viljum virkja meira. Við viljum koma málinu áfram. Ég er hérna í minni fyrstu ræðu og ég held að þeir sem heima sitja finnist að það sé mikilvægt að við ræðum þessi mál og ég held að þó að við séum flest sammála þá megi bæta ákveðna þætti í þessu frumvarpi og vonandi verður það gert í meðförum þingsins. En ég þakka fyrir í bili.