156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

268. mál
[22:46]
Horfa

Jón Gnarr (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka fyrir góða umræðu og áhugaverða um orkumál og sérstaklega varð ég uppnuminn yfir orðum hv. þm. Vilhjálms Árnasonar um þá vandræðalegu stöðu sem við erum í gagnvart orkuframleiðslu. Oft eru þetta umdeildar framkvæmdir eins og við þekkjum, virkjanir og hvað eigi að virkja og hvað eigi ekki að virkja. Svo er verið að tala um vindmyllur og hvar þær eigi að vera og hver eigi að eiga þær og hver eigi að reka þær og hver eigi síðan að sjá um að taka þær niður þegar þær ryðga, hvort það séu Íslendingar eða útlendingar o.s.frv. Notkun á jarðefnaeldsneyti, það er náttúrlega eitthvað sem við erum flest sammála um, við viljum reyna að hætta að nýta það og nota frekar endurnýtanlega orkugjafa. Mig langar að spyrja þingmanninn hver afstaða hans væri til kjarnorku. Sjálfum finnst mér mörg spennandi tækifæri í kjarnorku og sérstaklega með svona nýjustu græjum, þessi litlu kjarnorkuver sem er verið að gera, SMR kjarnorkuver sem eru með aflgetu allt að 300 MW. Finnst þingmanninum það fýsilegur kostur að við Íslendingar færum að skoða kjarnorku?